labba.

Persónuvernd

Gildir frá 8. nóvember 2026. Nær til Labba fyrir iPhone, Android og vefinn á labba.is.

Labba þarf ekki að vita hver þú ert. Göngubókin er geymd á tækinu þínu og fer hvergi annað.

Enginn aðgangur

Labba krefst ekki innskráningar og biður ekki um nafn, netfang eða kortaupplýsingar.

Göngubókin

Göngurnar þínar, með dagsetningu, vegalengd og vistuðum leiðarpunktum, eru geymdar á tækinu. Í appinu eru þær í einkaskráarsvæði appsins; á vefnum í vafranum sem þú notar. Þær eru ekki samstilltar milli tækja og við fáum þær aldrei.

Kerfisafrit iPhone geta innihaldið gögn appsins samkvæmt stillingum tækisins. Android-útgáfan slekkur á sjálfvirku kerfisafriti. Ef þú eyðir appinu eða hreinsar gögn vafrans hverfur göngubókin.

Staðsetning

Staðsetning er aðeins sótt þegar þú ýtir á staðsetningarhnappinn, og hún er notuð til að færa kortið að þér. Labba fylgist ekki með göngu í bakgrunni og sendir staðsetninguna ekki til okkar. Þú getur leitað, valið leið og skráð göngu án þess að veita staðsetningarleyfi.

Kortin

Bakgrunnskort eru sótt yfir netið frá OpenStreetMap. Við þær beiðnir fær kortaþjónustan IP-tölu tækisins og upplýsingar um hvaða kortaflísar eru sóttar, eins og við allar vefbeiðnir. Leitargrunnur og gönguleiðir fylgja appinu og síðunni. Tenglar á heimildir opnast í vafra, og þeir vefir hafa eigin persónuverndarstefnu.

Greiðslan

Greiðsluferlið í Labba er sviðsett. Engar kortaupplýsingar eru lesnar eða geymdar, engin greiðsluþjónusta er tengd og engin fjárhagsleg færsla fer fram.

Vefurinn

labba.is notar engar vafrakökur, enga greiningu og engar auglýsingar. Hýsingaraðilinn skráir hefðbundna aðgangsskrá (IP-tölu, tíma og slóð) til reksturs og öryggis.

Ábyrgðaraðili

Félagasamtökin Myndarsögur reka Labba. Hafðu samband á post@líf.is ef þú hefur spurningar. Þú getur einnig leitað til Persónuverndar.