labba.

Aðstoð

Eitthvað sem gekk ekki? Skrifaðu okkur á post@líf.is og segðu hvaða tæki þú notar.

Var ég rukkuð/rukkaður/rukkað?

Nei. Greiðsluferlið er sviðsett og greiðslugáttin fer alltaf í göngutúr. Engar kortaupplýsingar eru lesnar og ekkert er innheimt. Þú getur skráð gönguna eða látið gott ganga á annan hátt.

Hvar er göngubókin?

Á tækinu þínu. Hún er ekki samstillt milli síma, spjaldtölvu og vafra, og hún fylgir ekki úr vafranum yfir í appið. Ef þú eyðir appinu eða hreinsar gögn vafrans hverfur hún.

Gatan mín finnst ekki

Leitin byggir á götum og stígum úr OpenStreetMap og gönguleiðum Ferðamálastofu frá nóvember 2026. Prófaðu án broddstafa eða veldu bæinn fyrst. Þú getur líka teiknað leiðina á kortið eða slegið inn vegalengdina sjálf/ur.

Kortið birtist ekki

Bakgrunnskortið þarf netsamband. Leitin, leiðirnar og göngubókin virka án þess.

Staðsetningin

Labba spyr aðeins um staðsetningu þegar þú ýtir á staðsetningarhnappinn. Þú getur breytt leyfinu í stillingum símans hvenær sem er.